Samráð um samgöngur í Vatnajökulsþjóðgarði
Samráðsáætlun um samgöngur í Vatnajökulsþjóðgarði
Stefna um samgöngur í Vatnajökulsþjóðgarði - Hagsmunaaðilagreining
9. desember 2011:
Starfshópur um samgöngur í Vatnajökulsþjóðgarði skilaði inn niðurstöðum sínum vegna samráðs þann 2. desember 2011. Stjórn þjóðgarðsins mun fara yfir umfjöllun og ályktanir starfshópsins og stefnir að því að ljúka yfirferð og ákvarðanatöku um næstu skref fyrir vorið 2012. Skýrslu starfshópsins er að finna hér. [PDF]
27. nóvember 2011:
Starfshópur um samgöngur í Vatnajökulsþjóðgarði fundaði 31. október, 14. nóvember og 21. nóvember 2011. Sameiginlega fundargerð er að finna hér. [PDF]
25. október 2011:
Starfshópur um samgöngur í Vatnajökulsþjóðgarði fundaði 3. október 2011 og aftur 10. október 2011. Sameiginlega fundargerð er að finna hér. [PDF]
30. september 2011:
Starfshópur um samgöngur í Vatnajökulsþjóðgarði fundaði 26. september 2011 og er fundargerð að finna hér. [PDF]
23. september 2011:
Starfshópur um samgöngur í Vatnajökulsþjóðgarði fundaði 19. september 2011 og er fundargerð að finna hér. [PDF]
15. júní 2011:
Starfshópur um samgöngur í Vatnajökulsþjóðgarði fundaði þann 8. júní 2011 og er fundargerð að finna hér. [PDF]
Starfshópur um samgöngur í Vatnajökulsþjóðgarði fundaði þann 1. júní 2011 og er fundargerð að finna hér. [PDF]
30. maí 2011:
Starfshópur um samgöngur í Vatnajökulsþjóðgarði fundaði þann 25. maí 2011 og er fundargerð að finna hér. [PDF]
10. maí 2011:
Nú er tilbúin fundargerð samráðsfundarins sem haldinn var þann 3. maí. Í fundargerðinni eru orðrétt þau svör sem vinnuhópar skráðu við spurningum sem lagðar voru upp. Leitað hefur verið til nokkurra hagsmunaaðila um tilnefningar í starfshóp sem mótar tillögur til stjórnar þjóðgarðsins. Þeir sem leitað er til hafa verið beðnir um að sammælast við aðra skylda hagsmunaaðila um tilnefningar, eftir því sem við á. Fundargerð [PDF]
Hagsmunaaðilum hefur verið boðið að senda einn fulltrúa á samráðsfund sem haldinn verður þann 3. maí. Markmið samráðsfundarins er að leiða fram allar helstu röksemdir og sjónarmið varðandi samgöngur í þjóðgarðinum. Fundarboðið má sjá hér.
18. apríl 2011:
Hér fylgir með fundargerð af kynningarfundi Vatnajökulsþjóðgarðs um tilhögun samráðs vegna samgangna í Vatnajökulsþjóðgarði, sem haldinn var þann 13. apríl 2011. Tillaga að dagsetningu fyrir samráðsfundinn um aðgengi og samgöngur í Vatnajökulsþjóðgarði, verður kynnt nú í vikunni hér á vefnum. [Fundargerð PDF]
15. apríl 2011:
Kynningarfundur Vatnajökulsþjóðgarðs um tilhögun samráðs vegna samgangna í Vatnajökulsþjóðgarði var haldinn þann 13. apríl frá 17-18:30 á skrifstofu Alta í Ármúla 32, Reykjavík. Á fundinn mættu 17 gestir auk fulltrúa frá Vatnajökulsþjóðgarði og nokkurra aðila sem horfðu á útsendingu af fundinum á netinu. Umræður voru fjörlegar. Fundargerð eftir fundinn mun birtast hér á vefnum á mánudaginn kemur. Tillaga að dagsetningu fyrir samráðsfundinn um aðgengi og samgöngur í Vatnajökulsþjóðgarði, verður einnig lögð fram í byrjun næstu viku.
