Gestastofur Vatnajökulsþjóðgarðs
Innan Vatnajökulsþjóðgarðs eru tvær gestastofur, Gljúfrastofa í Ásbyrgi og Skaftafellsstofa í Skaftafelli. Fyrirhugað er að reisa fjórar gestastofur í viðbót, á Skriðuklaustri, Kirkjubæjarklaustri, Höfn og Mývatni. Skóflustungan að gestastofunni á Skriðuklaustri var tekin 16. apríl 2009. Gestastofurnar eru upplýsinga- og fræðslumiðstöðvar þjóðgarðsins þar sem gestir fá upplýsingar um þjóðgarðinn og nágrenni hans, gönguleiðir, náttúrufar, sögu, þjónustu og afþreyingu.
