Umgengni
ALMENN UMGENGNI Í ÞJÓÐGARÐINUM
Sagt er að umgengni lýsi innri manni. Mikilvægt er að virða einfaldar reglur í þjóðgörðum og á friðlýstum svæðum, þó ekki væri nema fyrir mikla umferð sem jafnan verður á þeim. Munum því eftir:
- Að halda næturró á tjaldsvæðum frá kl. 23:00 til 07:00.
- Að ganga snyrtilega um tjaldsvæðin og sýna öðrum gestum tillitssemi.
- Að hlífa gróðri tjaldsvæða, hellum ekki niður heitu vatni né brennum gróður með eldunartækjum.
- Að hafa ekki hunda eða önnur gæludýr laus í þjóðgarðslandinu eða á tjaldsvæðum og þrífum eftir þau úrgang.
- Óheimilt er að vinna spjöll á náttúrunni, svo sem brjóta greinar, grafa upp plöntur, trufla dýralíf, hrófla við stuðlabergi og öðrum jarðmyndunum eða hlaða vörður.
- Óheimilt er að skilja eftir eða grafa rusl í þjóðgarðslandinu og eru gestir hvattir til að flokka það sorp sem skilið er eftir.
- Óheimilt er að kveikja eld á víðavangi.
- Tökum ekkert með okkur nema myndir og minningar, skiljum ekkert eftir nema létt fótspor.
