Önnur tjaldsvæði
Á hálendi innan Vatnajökulsþjóðgarðs og áhrifasvæðum hans eru tjaldsvæði við helstu gistiskála. Eru þau talin upp hér að neðan ásamt rekstraraðilum og þeirri grunnþjónustu sem þar er að finna.
Drekagil (Ferðafélag Akureyrar)
Vatnssalerni, sturtur.
Herðubreiðarlindir (Ferðafélag Akureyrar)
Vatnssalerni, sturtur.
Kverkfjöll (Ferðafélag Fljótsdalshéraðs)
Vatnssalerni, sturta.
Snæfell (Ferðafélag Fljótsdalshéraðs)
Vatnssalerni, sturta.
Geldingafell (Ferðafélag Fljótsdalshéraðs)
Þurrsalerni.
Kollumúlavatn (Ferðafélag Fljótsdalshéraðs)
Þurrsalerni.
Kollumúli á Lónsöræfum (Ferðafélag Austur-Skaftfellinga)
Vatnssalerni, sturta.
Blágil (Skaftárhreppur)
Þurrsalerni.
Hólaskjól (Veiðifélag Skaftártungumanna)
Vatnssalerni, sturta.
Nýidalur (Ferðafélag Íslands)
Vatnssalerni, sturtur.
Auk ofantalinna tjaldsvæða er í Stjórnunar- og verndaráætlun þjóðgarðsins gert ráð fyrir tjaldsvæðum við Dettifoss, Gjallanda, Gæsavötn og Végarð (utan þjóðgarðs, nærri Snæfellstofu á Skriðuklaustri).
