Tjaldsvæði í Jökulsárgljúfrum
Tjaldsvæðið í Ásbyrgi er opið frá 15. maí til 15. september. Gestir eru beðnir um að gera vart við sig í Gljúfrastofu áður en tjaldað er, eða strax að morgni ef komið er eftir lokun. Tjaldsvæðið í Vesturdal er opið frá 10. júní til 15. september. Gestir eru beðnir um að gera vart við sig í upplýsingahúsi í Vesturdal áður en tjaldað er, eða strax að morgni ef komið er eftir lokun.
Í Ásbyrgi eru stæði fyrir um 350 tjöld. Ekki er hægt að taka frá tjaldstæði. Stórum hópum er bent á að hafa samband við starfsfólk áður en komið er á svæðið.
Tjaldsvæðið í Vesturdal er minna og þar eru fáar flatir sem hægt er að keyra inná.
Sími: 470 7100 | Netfang: jokulsargljufur@vatnajokulstdjodgardur.is
![]()
Í Ásbyrgi eru ekki ákveðnar flatir fráteknar fyrir húsbíla, hjólhýsi og fellihýsi. Hins vegar eru tenglar fyrir rafmagn á nokkrum flötum og þar er því oftar meira af húsbílum, hjólhýsum og fellihýsum en af tjöldum. Í Ásbyrgi eru 48 tenglar með 1500 W og 16 tenglar með 900 W. Notendur eru beðnir að þekkja orkuþörf rafmagnstækja sinna til að meta hvort að tenglarnir anni orkuþörf.
Í Ásbyrgi er salernisaðstaða í snyrtihúsi nyrst á tjaldsvæðinu og í minna þjónustuhúsi sunnar. Í Vesturdal er snyrtiaðstaða í tveimur þjónustuhúsum.
![]()
Í Ásbyrgi er sturtuaðstaða í stóra snyrtihúsinu. Fjórar sturtur fyrir hvort kyn. Verð: 300 kr/4 mínútur. Í Vesturdal er engin sturtuaðstaða og ekki heitt vatn.
![]()
Enginn sérstök eldunaraðstaða er fyrir gesti tjaldsvæðis. Þó eru vaskar undir skyggni við bæði snyrtihúsin á tjaldsvæðinu í Ásbyrgi sem og í Vestudal. Á báðum stöðum eru einnig grill sem gestir mega nota.
![]()
Þvottavél og þurrkskápar eru í snyrtihúsi á tjaldsvæði í Ásbyrgi.
![]()
Í Gljúfrastofu er hægt að komast í netsamband, bæði í tölvu sem er á staðnum sem og að tengjast þráðlaust. Kaupa þarf aðgang í Gljúfarstofu. Þráðlausa netsambandið er mjög stopult á tjaldsvæðinu.
