Ferðast um þjóðgarðinn
Description

Dagskrá landvarða í Skaftafelli

- sumarið 2013

Litlir landverðir í Skaftafelli

– föstudaga, laugardaga og sunnudaga á tímabilinu 15. júní til 4. ágúst

Áhugasamir krakkar á aldrinum 6-12 ára slást í för með landverði og rannsaka náttúruna í Skaftafelli. Áætla má að rannsóknarleiðangurinn taki 45-60 mínútur.

Hittumst kl. 16 við Spóastaði (salernishúsið vestast á tjaldsvæðinu).

Aðra daga vikunnar geta foreldrar og börn haft samband við landverði, sem gera sitt besta til að verða við óskum þeirra varðandi leiðsögn um náttúruna.


Þjóðgarður í Skaftafelli

- alla daga á tímabilinu 15. júní til 15. ágúst

Kvöldrölt um Skaftafell í fylgd landvarðar. Rætt um tilurð þjóðgarðsins, hlutverk hans og áhrif á náttúrufar og samfélag. Gangan tekur 45-60 mínútur. 

Hittumst kl. 20 við Spóastaði (salernishúsið vestast á tjaldsvæðinu). Leiðsögn á íslensku.


Skaftafellsjökull og loftslagsbreytingar

- alla daga á tímabilinu 15. júní til 15. ágúst

Landvörður fylgir gestum áleiðis að Skaftafellsjökli, segir þeim frá landmótun jökulsins og hnignun hans. Rætt verður um loftslagsbreytingar og ástæður þeirra. Gangan tekur 45-60 mínútur. 

Hittumst kl. 10:00 við Skaftafellsstofu. Leiðsögn á íslensku og ensku.


Gengið í Bæjarstað

– alla laugardaga á tímabilinu 15. júní til 3. ágúst

Gengið frá Skaftafelli í Bæjarstaðarskóg. Ætla má að gangan taki um sex klukkustundir

Við hittumst kl. 10:00 við Spóastaði (salernishúsið vestast á tjaldsvæðinu). Leiðsögn á íslensku.


Leiðsögn um Sel

– alla sunnudaga í júlí á tímabilinu 15. júní til 4. ágúst

Landvörður tekur á móti gestum í Seli og segir frá daglegu lífi fólksins sem þar bjó.

Gestir hitta landvörð við Sel kl. 14. Leiðsögn á íslensku.


 

Senda grein