Sögustaðir
Ás í Kelduhverfi
Framan af öldum var Ás í Kelduhverfi eitt mesta stórbýli landsins. Jörðin var með þeim stærstu í landinu. Hún náði, að meðtöldum hjáleigum, frá sjó að Dettifossi og vestur að sýslumörkum við Bunguvegg. Jörðin var kostarík, m.a. voru þar raftaskógar og engjalönd góð. Stórhlaup í Jökulsá á 17. og 18. öld eyddu miklum hluta engjanna og breyttu Ási úr „gagnauðugu höfuðbóli í stórt og erfitt kotbýli“. Kirkja var í Ási fyrr á öldum en var lögð af árið 1816. Svínadalur var löngum hluti af Ási og framan af öldum virðist þar oftast hafa verið sel. Alla 19. öldina var þar föst byggð og fram til ársins 1946. Getið er selja og smábýla á fleiri stöðum í Áslandi. Má þar nefna Fornasel sunnan Svínadals, Rauðhólasel norðan Rauðhóla og Gilsbakka sunnan Áss. Í Ásbyrgi (Byrgi) hefur jafnan verið búið en þar var ein af gömlu hjáleigum Áss. Skógrækt ríkisins eignaðist Ásbyrgi árið 1928 og skömmu síðar var innsti hluti þess girtur af.
Skaftafell í Öræfum
Skaftafell var stórbýli og þingstaður til forna. Snemma á öldum var staðurinn kirkjujörð og síðar konungsjörð. Bæjarhúsin stóðu fyrrum niðri á sléttlendinu við brekkuræturnar og sér enn til tófta austan við Eystragil þar sem heita Gömlutún. Vegna ágangs Skeiðarár fóru tún smám saman undir sand og á árunum 1830–1850 var bústaðurinn fluttur um 100 metrum hærra upp í brekkuna og reistir þrír bæir. Nú er búið í Bölta og Hæðum en Sel fór í eyði árið 1946.

