Ferðast um þjóðgarðinn
Description

Samgöngur

arabatur

Unnt er að komast að Vatnajökulsþjóðgarðinum með ólíkum hætti. Í suðri liggur aðalvegur landsins (þjóðvegur 1 – Hringvegurinn) fram með þjóðgarðinum. Þaðan eru ökuleiðir að Lakagígum og Skaftafelli, Öræfajökli og jaðarsvæðum jökulsins þar fyrir austan, allt til Lónsöræfa. Sumt eru fólksbílafærir vegir en annað hentar fjórhjóladrifsbílum. Upplýsingar um vegi og ástand þeirra fást hjá gestastofum eða upplýsingamiðstöðvum ferðamála – t.d. í Skaftafelli (Skaftafellsstofa) eða á Kirkjubæjarklaustri og á Höfn. Á þetta suðursvæði eru rútuferðir – sjá www.bsi.is(Bifreiðastöð Íslands) og unnt er að fljúga til Hornafjarðar með áætlunarvélum (www.ernir.is). Vegfarendum er almennt bent á ný vegakort og upplýsingar um ástand hálendisvega – www.vegagerdin.is.

Ökuleiðir að austanverðum Vatnajökli liggja um veginn að Kárahnjúkasvæðinu, úr Fljótsdal. Af þeim vegi er tenging að Snæfelli en mestur hluti austurjökulsins og jaðarsvæða hans er aðeins í göngufæri því engir vegir liggja að jöklinum á svæði frá Eyjabökkum suður í Lónsöræfi. Rútur ganga til Egilsstaða (BSÍ) og þangað eru tíðar flugferðir – sjá www.flugfelag.is(Flugfélag Íslands). Upplýsingar um vegi og ástand þeirra fást hjá gestastofum eða upplýsingamiðstöðvum ferðamála – t.d. í Jökulsárgljúfrum (Gljúfrastofa) eða á Húsavík og Mývatni.

Norðursvæði þjóðgarðsins og svæða í hans umsjá er þrískipt. Gott vegasamband er við Jökulsárgljúfur, einkum að sumarlagi. Frá þjóðvegi 1 liggja sumarfærir vegir báðum megin Jökulsár á Fjöllum niður með ánni, framhjá Dettifossi og niður á þjóðveg í Öxarfirði. Vegirnir verða bættir á næstunni. Vegur um Tjörnes frá Húsavík í Öxarfjörð eða frá Raufarhöfn er opinn allt árið. Flugsamgöngur tengjast Akureyri (Flugfélag Íslands) og upplýsingar um rútuferðir fást hjá BSÍ. Meginökuleiðin í Herðubreiðarlindir og áfram í Öskju er aðeins fær jeppum og stærri fjórhjóladrifsbílum (óbrúaðar ár). Þar er tenging við Gæsavatnaleið (úr Nýjadal) og á það sama við um bílakost fyrir hana. Þar er líka fjallvegatenging við Kverkfjöll og áfram austur um brúaðar ár en ferðir þangað og í Hvannalindir krefjast fjallabíla. Sumarlangt gefast rútuferðir til Herðubreiðarlinda, í Öskju og til Kverkfjalla. Upplýsingar fást á Mývatni og víðar.

Vesturhluti Vatnajökulsþjóðgarðsins, norðan við Skaftá tengist ökuleiðum um nyrðra Fjallabak (t.d. um Landmannalaugar - Veiðivötn) og Sprengisandsleið í Nýjadal. Unnt er að komast á fjórhjóladrifsbílum í Jökulheima og á svæði þar í kring. Einnig er jeppavegur af Fjallabaksvegi nyrðri að Langasjó (sem ekki er hluti þjóðgarðsins). Af Sprengisandsleið liggur vegur að Hágöngulóni og fjallabílaslóði inn á Dyngjuháls (Gæsavatnaleið) og áfram austur. Engar rútuferðir eru að þessum hluta jökulsins nema hvað áætlunarbíll ekur Sprengisandsleið að sumarlagi (BSÍ) og þá um Nýjadal.



Þetta vefsvæði byggir á Eplica