Ferðast um þjóðgarðinn
Description

Öryggi ferðamanna

Vatnajökulsþjóðgarður er víðfemur og innan hans leynast ýmsar hættur vanbúnum og óreyndum ferðamönnum. Á það ekki síst við um jökulinn sjálfan og jaðar hans.

Í jöklum myndast jökulsprungur og svelgir sem geta orðið tugir metra að dýpt. Skapar það mikla hættu fyrir þá sem á jökla fara. Á snjólausum jökli má auðveldlega greina hættuna á yfirborði jökulsins en að sama skapi eru sprungur og svelgir illgreinanleg þegar þau eru hulin snjó. Snjóhulan er oft aðeins þunnt lag sem ber lítinn eða engan þunga og skapar því sérstaklega varhugaverðar aðstæður.

Við jaðar jökla geta einnig leynst hættur sem augað greinir ekki. Kviksyndi eiga til að myndast vegna bráðinna ísjaka og hafa þau gleypt bæði menn og hesta. Kalt vatn jökullóna skapar líka sérstaka hættu því mjög snögg kæling getur valdið hjartastoppi og krampaflogum. Gildir þá einu hversu vel syndir menn eru.

Snögg veðrabrigði á Íslandi koma mönnum oft í opna skjöldu og getur það haft afdrifaríkar afleiðingar, sér í lagi á jöklum og hálendinu.

Af ofangreindu má ljóst vera að þekking, reynsla og góður undirbúningur eru lykilatriði þegar ferðast er á varhugaverðum slóðum. Slysavarnarfélagið Landsbjörg heldur úti heimasíðu þangað sem sækja má góð ráð fyrir ferðamenn. Á heimasíðu Vatnajökulsþjóðgarðs er einnig að finna leiðbeiningar fyrir ferðir á Hvannadalshnúk.


safe276

Senda grein