Ferðast um þjóðgarðinn
Description

Akstur innan þjóðgarðsins

Flestir heimsækja Vatnajökulsþjóðgarðinn á bílum, bæði einkabílum, bílaleigubílum og rútum. Þeir sem aka sjálfir verða að gæta að því að leggja ekki á bílum, sem eru óhentugir til aksturs á grófum vegum eða skornum slóðum, í akstur á vegum sem teljast þeim illfærir eða ófærir. Einnig ber að hafa í huga afdráttarlaust bann við akstur utan vega (nema með undantekningu þegar nægur snjór liggur yfir og þá aðeins á breyttum bílum, fjórhjólum eða vélsleðum).

Auk þess getur hlotist verulegt tjón á umhverfi og ökutækjum sem ekki er tryggingarbært af utanvegaakstri. Algengt er að farartæki sökkvi í bleytu og festist og mikið jarðrask hlýst af því að koma farartækinu burtu. Verulegt fjárhagstjón getur hlotist af óhappi utan vega á hálendi Íslands.

Að lokum má benda á að mikið af skoðunarverðum stöðum í Vatnajökulsþjóðgarðinum verður best notið fótgangandi.

Á heimasíðu Vegagerðarinnar má nálgast kort sem sýnir ástand hálendisvega á hverjum tíma (sjá www.vegagerd.is).

Slóðir þar sem fjallað er um akstur utan vega:

Landvernd

Ferðamálaráð

Lögregluvefurinn

Reglugerð um akstur utan vega

Ísland

Senda grein



Þetta vefsvæði byggir á Eplica