Ferðast um þjóðgarðinn
Description

Skaftafell

Skaftafell var lögformlega fest sem þjóðgarður árið 1967 og hefur allt frá því að Skeiðarársandur var brúaður verið vinsæll áfangastaður jafnt innlendra sem erlendra ferðamanna.

Lambhagi-GO01Náttúrufegurð, veðurskilyrði og úrval gönguleiða gera Skaftafell að kjöráfangastað þeirra sem vilja njóta útivistar í íslenskri náttúru. Eiga allir að geta fundið leið við sitt hæfi. Stuttar og auðveldar leiðir liggja að Svartafossi og Skaftafellsjökli, en fyrir þá sem vilja fara lengra eru Morsárdalur og Kristínartindar helstu áfangastaðir. Nálægð við Öræfajökul gerir Skaftafell líka að kjörinni bækistöð þá sem ætla að ganga á hæsta tind landsins, Hvannadalshnjúk.

Sjálfstæð ferðaþjónustufyrirtæki hafa aðsetur í Skaftafelli og bjóða skipulagðar ferðir á jökul, mismunandi að erfiðleikastigi. Einnig er í boði útsýnisflug um Vatnajökul og nágrenni.

Myndasafn - Skaftafell


Samgöngur

icn-jeep

Vegasamgöngur

Skaftafell er við þjóðveg 1. Frá Reykjavík eru 326 km í Skaftafell en 136 km frá Höfn í Hornafirði. Frá þjóveginum eru tveir kílómetrar á bundnu slitlagi (vegnúmer 998) að þjónustumiðstöðinni í Skaftafelli.

 
icn-bus

Almenningssamgöngur

Á sumrin fer ætlunarbifreið á milli Reykjavíkur og Hafnar í Hornafirði og hefur viðkomu í Skaftafelli: www.sterna.is

Á sumrin er einnig áætlunarbifreið milli Reykjavíkur og Skaftafells (www.re.is) og Allrahanda bjóða upp á hraðferð milli Reykjavíkur og Skaftafells þrjá daga í viku (www.grayline.is).


Á veturna fer strætó á milli Reykjavíkur og Hafnar: www.strætó.is

 

Þjónusta og afþreying

icn-food

Matur og veitingar

Veitingasala er opin í Skaftafellsstofu yfir sumartímann. Á veturna er hægt að kaupa heitt kakó og kaffi í sjálfsala. 


Söluskálinn í Freysnesi er í 5 km fjarlægð frá Skaftafelli. Þar er rekin veitingasala allan ársins hring og einnig er þar hægt að kaupa ýmsa matvöru. Næsta stóra matvöruverslun er á Kirkjubæjarklaustri.

 
icn-lodging

Gisting

Gistiheimili og hótel eru nágrenni Skaftafells. Upplýsingar um gistingu austan Skaftafells eru að finna á vef Ríkis Vatnajökuls en um gistingu vestan Skaftafells á vef Friðar og frumkrafta.

 

Fræðslugöngur landvarða

icn-hiking_sm

Sumarið 2011 eru fræðslu-göngur í Skaftafelli á tímabilinu 15. júní - 15. ágúst.

Lesa meira
 

Veður og færð

icn-weather_sm

Hér er hægt að nálgast nýjustu upplýsingar um veður og færð í Skaftafelli og nágrenni.

Lesa meira
 

Gönguleiðir í Skaftafelli

icn-hiking_sm

Úrval göngu- leiða er að finna í Skaftafelli.

Lesa meira
 

Tjaldsvæði í Skaftafelli

icn-camping_sm

Í Skaftafelli er stórt tjald- svæði með allri helstu þjónustu.

Lesa meira
 


Þetta vefsvæði byggir á Eplica