Gisting
Gisting: Nokkrir fjallaskálar eru í friðlandinu í Lónsöræfum eða jaðri þess.
Í Kollumúla er Múlaskáli í eigu Ferðafélags Austur-Skaftfellinga (sjá www.gonguferdir.is). Þar er einnig gangnamannaskáli í einkaeigu og við Eskifell er annar skáli í eigu sama aðila. Ferðafélag Fljótsdalshéraðs rekur skála við Kollumúlavatn og annan við Geldingafell (sjá www.fljotsdalsherad.is/ferdafelag ). og Leirás (Ferðafélag Djúpavogs). Vatnsklósett og sturta eru í Kollumúla og þurrklósett við Eskifell.
