Lónsöræfi
Friðlandið í Stafafellsfjöllum er oft kallað einu nafni Lónsöræfi. Þar er mikil fjölbreytni í formum og litum og mikið um líparít, holufyllingar og fagra steina. Víða eru grónir balar og ekki ólíklegt að menn rekist á hreindýr á ferð sinni um fjöllin.
Lónsöræfi voru friðlýst árið 1977 og eru nú í umsjá Vatnajökulsþjóðgarðs. Frá miðjum sjöunda áratug síðustu aldar hafa ferðamenn lagt leið sína þangað í einhverjum mæli og hafa Lónsöræfi notið stigvaxandi vinsælda meðal göngufólks. Er nú net gönguleiða um svæðið, göngubrýr og skálar.
