Gisting
Gisting: Gangnamannaskáli er í Blágiljum og er einungis opinn þeim sem pantað hafa gistingu fyrirfram. Skálinn er í umsjá Skaftárhrepps. Í Blágiljum er einnig tjaldsvæði og kamar. Við Tjarnargíg er vatnssalerni, aðgengilegt fyrir alla. Frekari upplýsingar um gistingu í V-Skaftafellssýslu má finna á www.klaustur.is
