Ferðast um þjóðgarðinn
Description

Laki

LakiIBI006Lakagígar eru um 25 kílómetra löng gígaröð sem varð til fyrir tæplega 250 árum síðan í einhverju mesta eldgosi sem orðið hefur á sögulegum tíma. Eru gígarnir kenndir við móbergsfjallið Laka sem stendur um miðja gígaröðina.

Lakagígar eru friðlýst náttúruvætti sem þykir einstakt á heimsvísu og er Laki einn fjölsóttasti áfangastaður ferðamanna á vestursvæði Vatnajökulsþjóðgarðs.

Laki - myndasafn


Samgöngur

icn-jeep

Vegasamgöngur

Frá þjóðvegi 1 liggur fjallvegur F206 að Laka. Óbrúaðar ár eru á leiðinni sem geta vaxið mjög í miklum rigningum.

 
icn-bus

Almenningssamgöngur

Á sumrin fer áætlunarbifreið frá Skaftafelli í Laka, með viðkomu á Kirkjubæjarklaustri, og er ferðinni þá heitið að Tjarnargíg (sjá www.re.is).

 

Þjónusta

icn-food

Veitingasala

Engin á svæðinu. Næst á Kirkjubæjarklaustri.

 
icn-lodging

Gisting

Gangnamannaskáli er í Blágiljum og er einungis opinn þeim sem pantað hafa gistingu fyrirfram. Skálinn er í umsjá Skaftárhrepps. Í Blágiljum er einnig tjaldsvæði og kamar. Við Tjarnargíg er vatnssalerni, aðgengilegt fyrir alla. Frekari upplýsingar um gistingu í V-Skaftafellssýslu má finna á www.klaustur.is

 

Upplýsingar

icn-information_sm

Landvörður er í Laka yfir sumartímann sem veitir ferðamönnum upplýsingar og fræðslu um svæðið.

Lesa meira
 

Verslun

icn-food_sm

Engin á svæðinu. Næst á Kirkjubæjarklaustri.

Lesa meira
 

Afþreying

icn-hiking_sm

Merktar gönguleiðir liggja um Lakagíga. Þær stystu eru um 20 mínútna gangur en sú lengsta 2-3 klukkustundir.

Lesa meira
 


Þetta vefsvæði byggir á Eplica