Kverkfjöll / Hvannalindir
Kverkfjöll eru mikil megineldstöð í norðurbrún Vatnajökuls og þriðji hæsti fjallabálkur landsins á eftir Öræfajökli og Bárðarbungu. Í Kverkfjöllum hefur byggst upp þjónusta við ferðamenn og má finna þar áhugaverðar gönguleiðir um eitt öflugasta háhitasvæði landsins.
Norðan Kverkfjalla eru Hvannalindir; friðlýst gróðurvin þar sem finna má rústir útilegumannabæjar, en ýmsar vísbendingar eru um að Fjalla-Eyvindur hafi hafst þar við í útlegð sinni.
