Ferðast um þjóðgarðinn
Description

Fræðslugöngur landvarða

Úrval gönguleiða er í Jökulsárgljúfrum. Landverðir skipuleggja stuttar fræðslugöngur um þjóðgarðinn og er þátttaka gestum að endurgjaldslausu.

Á hverjum degi frá 21. júní til 15. ágúst verður boðið upp á eftirfarandi fræðsluferðir með landvörðum:


Barnastund í Ásbyrgi
Daglega kl. 11:00 - 11.45. Á hverjum degi geta hressir krakkar á aldrinum 6-12 ára rannsakað náttúruna með landverði og farið í skemmtilega leiki. Hittumst kát við stóra snyrtihúsið á tjaldsvæðinu.

Griðastaðurinn Ásbyrgi Ásbyrgi - bílastæði innst í Ásbyrgi kl. 14.00 ~1 klst
Griðastaðurinn Ásbyrgi kl. 14:00. Alla daga verður farið í stutta og létta göngu um innsta hluta Ásbyrgis. Landvörður mun segja ykkur frá Ásbyrgi, myndun þess og hvernig Ásbyrgi hefur orðið griðastaður svo margra. Gaman er að rölta um og rannsaka lífríkið, ganga um skóginn eða heilsa upp á álfana. Lagt er af stað frá bílastæðinu inni í Ásbyrgi.

Kvöldrölt Ásbyrgi - hver ganga er auglýst sérstaklega kl. 20.30 ~1 klst
Kvöldrölt kl. 20:30. Stutt og létt kvöldganga í Ásbyrgi. Lagt er af stað frá stóra snyrtihúsinu á tjaldsvæðinu. Hver ganga er auglýst sérstaklega.

Hjóðaklettahringur - Vesturdalur- bílastæði við Hljóðakletta kl. 14.00 1-2 klst
Hljóðaklettahringur kl. 14:00. Genginn er hringur um Hljóðakletta og komið við hjá Tröllinu, í Kirkjunni og víðar. Á leiðinni mun landvörður segja frá myndun Hljóðakletta og skoða með ykkur ótal kynjamyndir í klettum, stuðla, kubbaberg og býkúpuveðrun. Að mestu létt rölt, en hluti leiðarinnar er þó seinfarinn. Farið verður rólega yfir. Gangan hefst alla daga við bílastæðið við Hljóðakletta.


Senda grein



Þetta vefsvæði byggir á Eplica