Ferðast um þjóðgarðinn
Description

Jökulsárgljúfur

JokulsargljufurRTH004Í Jökulsárgljúfrum eru samankomnar nokkrar af helstu perlum íslenskrar náttúru. Dettifoss er álitinn aflmesti foss Evrópu og má í honum skynja þá krafta sem myndað hafa Ásbyrgi og Hljóðakletta. Andstæður krafts og friðar eru svo óvíða skýrari en í Hólmatungum þar sem tærir lækir og lindir renna út í beljandi jökulá.

Jökulsárgljúfur eru draumaland göngufólks og þar eru fjölmargar merktar gönguleiðir, misjafnar að lengd og erfiðleika. Jökulsárgljúfur eru ekki síður áfangastaður fyrir þá sem vilja njóta íslensks sumars í fallegu umhverfi enda fyrirtaks tjaldsvæði bæði í Ásbyrgi og Vesturdal.

Jökulsárgljúfur - myndasafn


Samgöngur

icn-jeep

Vegasamgöngur

Frá þjóðvegi 1 liggur vegur 85 um Húsavík í Ásbyrgi og er bundið slitlag alla leið. Eru um 65 km frá Húsavík í Ásbyrgi.

 

Frá vegi 85 liggur vegur 864 framhjá Dettifossi austanverðum að þjóðvegi 1. Vegur 864 er malarvegur og þarf ökuhraði að miðast við aðstæður hverju sinni. Vegurinn lokast í byrjun október og er opnaður seinnihlutann í maí.
Vegalengdir:

Ásbyrgi - Dettifoss: 28 km
Ásbyrgi - þjóðvegur (við Grímsstaði): 60 km

 

Vestanmegin Jökulsár er vegur 862. Hann er fær öllum bílum að Dettifossi. Athugið að hluti af þessum vegi var áður flokkaður sem fjallvegur (frá Vesturdal að Dettifoss) en frá og með 2011 er vegurinn skilgreindur sem malarvegur og því fær öllum bílum. Vegfarendur þurfa þó að miðað ökuhraða við ástand vegarins hverju sinni. Vegurinn lokast í byrjun október og er opnaður í lok maí/byrjun júní.

Vegalengdir:

Ásbyrgi - Vesturdalur (Hljóðaklettar): 16 km

Vesturdalur - Hólmatungur: 16 km

Hólmatungur - Dettifoss: 7 km. 

 

Haustið 2010 var opnað fyrir akstur á nýjan, malbikaðan veg frá Dettifossi og áfram suður að þjóðvegi 1. Athuga þarf að þessi vegur er ekki þjónustaður yfir veturinn. 

Vegalengdir:

Dettifoss - þjóðvegur 1: ~ 20 km

Dettifoss - Mývatn: ~ 30 km

 
icn-bus

Almenningssamgöngur

Fastar áætlunarferðir eru frá Akureyri í Ásbyrgi allt árið. Yfir sumartímann eru einnig daglegar ferðir frá Ásbyrgi í Vesturdal og að Dettifossi vestanverðum. Nánari upplýsingar má fá á heimasíðu SBA.

 

Þjónusta

icn-food

Veitingasala

Kaffisala er í Gljúfrastofu. Veitingasala er í versluninni Ásbyrgi.

 
icn-lodging

Gistiheimili

Gistiheimili og hótel eru í nágrenni Jökulsárgljúfra (sjá vef ferðaþjónustuaðila á Norðausturlandi).

 

Fræðslugöngur landvarða

icn-hiking_sm

Landverðir í Jökulsárgljúfrum skipuleggja stuttar fræðslu-göngur um þjóðgarðinn og er þátttaka gestum að endurgjaldslausu.

Lesa meira
 

Gönguleiðir í Jökulsárgljúfrum

icn-hiking_sm

Í Jökulsár-gljúfrum er úrval gönguleiða við allra hæfi.

Lesa meira
 

Tjaldsvæði í Jökulsárgljúfrum

icn-camping_sm

Í Ásbyrgi er stórt tjald- svæði með mikilli þjón- ustu. Í Vesturdal er tjaldsvæði með minni þjónustu.

Lesa meira
 

Veður og færð

icn-weather_sm

Hér má nálgast upplýsingar um veður og færð.

Lesa meira
 


Þetta vefsvæði byggir á Eplica