Ferðast um þjóðgarðinn
Description

Jökulheimar

Í Jökulheimum hefur byggst upp aðstaða á vegum Jöklarannsóknafélags Íslands vegna ferða á Vatnajökul. Er umhverfi þar bæði eyðilegt og stórbrotið. Má þar líta lítt grónar vikursléttur og melafláka milli sérkennilegra stökkulbólstrabergsbreiða, jökulrofna móbergshamra og fjölbreytta gíga. Undan Tungnaárjökli kemur Tungná sem er ein vatnsmesta jökulá landsins.


Samgöngur

icn-bus

Almenningssamgöngur

Frá Mývatni er boðið upp á dagsferðir í Öskju með viðkomu í Herðubreiðarlindum. Frá Akureyri er farin þriggja daga ferð þar sem einnig er farið í Kverkfjöll.

 
icn-jeep

Vegasamgöngur

Vegur F88 liggur frá þjóðvegi 1 um Herðubreiðarlindir að Drekagili. Á leiðinni eru tvö vöð sem geta verið ófær minni jeppum. Frá Drekagili liggur vegur F894 að bílastæði nærri Öskju.


 

Afþreying og þjónusta

icn-food

Veitingasala

Engin á svæðinu.

 
icn-lodging

Gisting

Jöklarannsóknafélag Íslands á og rekur tvo skála í Jökulheimum (sjá www.jorfi.is ).

 
icn-hiking

Afþreying

Frá Jökulheimum er stutt að ganga á Skálahnjúk eða Heimabungu og fá þaðan gott útsýni yfir Tungná og svæðið í kring. Skammt frá Jökulheimum er vegslóð norður að móbergsdranginum Dór og þaðan er stutt í Heljargjá.

 

Upplýsingar

icn-information_sm

Landvörður með aðsetur í Hrauneyjum hefur eftirlit með Jökulheimum og svæðinu þar í kring. Til hans er hægt að leita eftir upplýsingum.

Lesa meira
 

Verslun

icn-food_sm

Engin á svæðinu.

Lesa meira
 


Þetta vefsvæði byggir á Eplica