Heinaberg / Hjallanes
Þrjár miklar jökultungur setja svip sinn á svæðið sem samanstendur af Hjallanesi vestan Kolgrímu og Heinabergi austan hennar. Er fágætt að finna jökla í jafnmiklu návígi við heilt byggðarlag.
Sem áfangastaður ferðamanna er svæðið í mótum. Heimamenn á Skálafelli hafa stikað skemmtilega gönguleið um Hjallanes að Skálafellsjökli og jafnframt komið fyrir upplýsingaskiltum. Þá eru fáanleg gönguleiðakort af Mýrum og Suðursveit með fleiri tillögum að gönguleiðum. Að austanverðu hafa verið sett upp þurrsalerni nærri Heinabergsjökli. Ekki er óvanalegt að rekast á stórar hjarðir hreindýra á svæðinu.
