Ferðast um þjóðgarðinn
Description

Vegasamgöngur

Aðalleiðin í Drekagil við Öskju liggur frá þjóðvegi 1 um leið 901 (Möðrudal) og inn á Arnadalsleið (F905). Þaðan er farið inn á Austurleið, F910 sem liggur að Drekagili. Á leiðinni eur tvö lítil vöð og tvær brýr, yfir Kreppu og Jökulsá á Fjöllum. Frá Drekagili liggur vegur F894 (8 km) að bílastæðinu við Vikraborgir þaðan sem hægt er að ganga að Öskjuvatni og Víti.

Annar möguleiki er að fara frá þjóðvegi 1 um veg F88 sem liggur um Herðubreiðarlindir að Drekagili. Athuga þarf að á þessari leið eru tvö vöð, yfir Grafarlandsá og Lindaá, sem geta verið ófær minni jeppum.

Senda grein



Þetta vefsvæði byggir á Eplica