Ferðast um þjóðgarðinn
Description

Aðgengi hreyfihamlaðra á norðursvæði

Aðgengi hreyfihamlaðra að áningar- og útivistarstöðum á norðursvæði Vatnajökulsþjóðgarðs er misgott.  Í Jökulsárgljúfrum eru salerni fyrir fatlaða á meirihluta áningastaða og tjaldsvæðum en nokkuð vantar uppá að bílastæðin uppfylli kröfur um gott aðgengi. Góður stígur um innsta hluta Ásbyrgis að útsýnispalli uppfyllir varla viðmið og sama má segja um góða stíga að Hljóðaklettum og Dettifossi. Á hálendinu eru fáir áningastaðir aðgengilegir fötluðum með tilliti til bílastæða, salernis og upplýsingaskilta.

Í Ásbyrgi er góður stígur frá bílastæði að útsýnispalli við Botnstjörn og frá bílastæði að Velli. Fyrirhugað er að eftir sumarið 2010 uppfylli þessi stígur viðmið Ferðamálastofu fyrir aðgengi fólks með gönguhömlun. Nálgast má erfiðleikagráðun göngustíga í Vatnajökulsþjógarði hér og skýrslu Ferðamálastofu um aðgengi að áningar- og útivistarsvæðum hér.

Bílastæði fyrir fatlaða er við innsta hluta Ásbyrgis. Einnig eru bílastæði fyrir fatlaða við Gljúfrastofu, í Vesturdal, Hólmatungum og Dettifoss að austan en öll þarfnast þau úrbóta.

Salerni fyrir fatlaða eru í Gljúfrastofu, innsta hluta Ásbyrgis, Vesturdal, Hólmatungum og vestanverðan Dettifoss. Einnig við Dettifoss að austanverðu en það þarfnast úrbóta.



Þetta vefsvæði byggir á Eplica