Um okkur
Description

Viðburðir

Kvennahlaup í Skaftafelli

kvennahlaup_2012_bolur_smallKvennahlaup Sjóvá og ÍSÍ verður í Skaftafelli laugardaginn 16. júní 2012. Í boði eru tvær vegalengdir: 2 km og 5 km. Hlaupið hefst stundvíslega klukkan 13 en upphitun fyrir hlaupið hefst korteri fyrr eða kl. 12:45.

Forsala á bolum er í Skaftafellsstofu og kostar hver bolur 1.250 kr, sem jafnframt er þátttökugjald. Að loknu hlaupi býður Vatnajökulsþjóðgarður þátttakendum í súpu og kaffi í veitingasölu Skaftafellsstofu. Allir hlauparar fá að auki verðlaunapening, Egils Kristal og glaðning frá Nivea.

Hlaupið er við allra hæfi enda fer hver á sínum hraða. Styttri leiðina er hægt að ganga með barnakerru, en börnum á öllum aldri eru velkomið að taka þátt.