Gengið í Bæjarstaðarskóg
Alla laugardaga í júlí og fyrsta laugardag í ágúst geta gestir í Skaftafelli fylgt landverði í gönguferð í Bæjarstaðarskóg í Morsárdal. Gangan hefst fyrir framan Skaftafellsstofu klukkan 10:00 og er áætlað að hún taki um sex klukkustundir. Alls er leiðin rétt rúmir 16 kílómetrar.
Gangan er hæfilega krefjandi og gestir þurfa að vera í sæmilegu gönguformi. Stikla þarf yfir læki við Bæjarstað og því betra að hafa góðan skóbúnað. Eins getur verið gott að hafa göngustafi þegar gengið er upp Grjóthól, en alls ekki nauðsynlegt. Að lokum er rétt að minna gesti á að hafa með sér vatnsbrúsa og nesti eða aðra hressingu. Hægt er að fylla á brúsann í lækjunum við Bæjarstað.
Fyrsta ferð er laugardaginn 6. júlí og sú síðasta 3. ágúst. Leiðsögn er á íslensku. Ekkert þátttökugjald er í ferðina og allir eru velkomnir.
