Viðburðir
Flugeldasýningin á Jökulsárlóni
Hin árlega flugeldasýning á Jökulsárlóni verður laugardagskvöldið 25. ágúst 2012.
Upplýstir jakar og stórkostleg flugeldasýning í magnaðri umgjörð náttúrunnar skapa einstaka upplifun og mæta hundruð manna á hverju ári til að njóta sýningarinnar.
Allur ágóði af aðgangseyri rennur til Björgunarsveitar Hornafjarðar sem heldur utan um sýninguna.
Upplýsingar um gistingu er að finna á www.visitvatnajokull.is
