Um okkur
Description

Áherslur í umhverfismálum í innra starfi Vatnajökulsþjóðgarðs

Við mótun Stjórnunar- og verndaráætlunar Vatnajökulsþjóðgarðs hefur nú þegar verið tekið mið af niðurstöðu umhverfisúttektar. Mótun umhverfisstefnu fyrir innra starf þjóðgarðsins og starfsmarkmið henni tengd er þannig samofin Stjórnunar- og verndaráætluninni. 

Í framtíðarsýn Stjórnunar- og verndaráætluninni stendur meðan annars að:

  • virðing og verndun náttúru, menningar og minja er í hávegum höfð; sjálfbærni er leiðarljósið og í góðri sátt nýtum við og njótum þessara verðmæta.

  • traustir innviðir þjóðgarðsins, faglegur metnaður, gott samstarf og skýr viðmið um starfsemi hafa lagt grunn að góðum árangri í starfseminni. 

  • starf skuli byggjast á virkri umhverfisstefnu og að eigin starfsemi sé öðrum góð fyrirmynd.


Til að tryggja framgang framtíðarsýnar er lögð áhersla ýmsa þætti, eftirfarandi eru atriði er varða umhverfismál í innra starfi þjóðgarðsins:

  • Að dregið verði úr umferð einkabíla og hvatt til aukinna almenningssamgangna og umhverfisvænna ferðamáta.

  • Að tryggja að grunnvatn og yfirborðsvatn mengist ekki af völdum umferðar, mannvirkjagerðar eða starfsemi þjóðgarðsins .

  • Að tryggja að öll meðhöndlun og förgun úrgangs sé með viðurkenndum hætti. 

  • Að byggja upp trausta innviði með markvissu verklagi. 

  • Að tryggja að lagakröfur á sviði umhverfismála séu uppfylltar.

  • Að vinna markvisst að því að lágmarka umhverfisáhrif í rekstrinum.

  • Að setja skýrar reglur um leyfisveitingar vegna atvinnustarfsemi innan þjóðgarðsins. 

  • Að mótuð verði öryggisáætlun sem tiltekur ábyrgð, viðbrögð og kynningu.

  • Að upplýsa gesti um umhverfisstarf þjóðgarðsins og hvetja til þátttöku í því. 

  • Að skilgreina samstarfsaðila og vinna markvisst með þeim. 

  • Að setja skýr viðmið um gæði og samstarf við þjónustuaðila og rekstraraðila.

  • Að stuðla að sjálfbærri ferðaþjónustu innan þjóðgarðsins og í jaðarbyggðum hans.


Sjá nánar í Stjórnunar- og verndaráætlun Vatnajökulsþjóðgarðs.


Senda grein



Þetta vefsvæði byggir á Eplica