Um okkur
Description

Stjórn Vatnajökulsþjóðgarðs

Í stjórn Vatnajökulsþjóðgarðs sitja sjö fulltrúar: fjórir formenn svæðisráða þjóðgarðsins, einn fulltrúi tilnefndur af umhverfisverndarsamtökum og tveir fulltrúar skipaðir án tilnefningar af umhverfisráðherra, þ.e. formaður og varaformaður. Einn fulltrúi tilnefndur af útivistarsamtökum á áheyrnaraðild að fundum stjórnar.


Stjórn Vatnajökulsþjóðgarðs skipa:


Kristveig Sigurðardóttir - formaður
Varamaður: Gunnar Sveinbjörn Ólafsson

Rósa Björk Halldórsdóttir - varaformaður
Varamaður: Þorsteinn M. Kristinsson
Böðvar Pétursson - aðalmaður
Soffía Helgadóttir, varamaður
Björn Ármann Ólafsson
- aðalmaður
Sigrún Blöndal, varamaður
Hjalti Þór Vignisson
- aðalmaður
Björn Ingi Jónsson, varamaður
Elín Heiða Valsdóttir -
aðalmaður
Sigurður Skúlason, varamaður
Sigrún Helgadóttir
- aðalmaður, tilnefnd af umhverfisverndarsamtökum
Björn H. Barkarson, varamaður
Snorri Ingimarsson
- aðaláheyrnarfulltrúi tilnefndur af Samtökum útivistarfélaga
Þorvarður Helgason, varaáheyrnarfulltrúi


Stjórn Vatnajökulsþjóðgarðs hefur umsjón með náttúruvernd í Vatnajökulsþjóðgarði og eru helstu verkefni hennar eftirfarandi:

  1. Stefnumótun í málefnum þjóðgarðsins.
  2. Yfirumsjón með gerð tillögu að verndaráætlun og reglugerðar fyrir þjóðgarðinn.
  3. Gerð fjárhagsáætlunar um rekstur þjóðgarðsins, ráðstöfun fjár til rekstrarsvæða og samþykkt rekstraráætlunar hvers svæðis.
  4. Samræming á starfsemi rekstrarsvæða þjóðgarðsins.
  5. Eftirlit með framkvæmd reglna þjóðgarðsins og verndaráætlunar.
  6. Samstarf við stofnanir, sveitarfélög og hagsmunaaðila um málefni þjóðgarðsins.


Senda grein



Þetta vefsvæði byggir á Eplica