Þjóðgarðurinn

Skaftafellsstofa

Skaftafellsstofa

Hnjukurinn01Afgreiðslutími Skaftafellsstofu árið 2010 er sem hér segir:

1. janúar - 28. febrúar
11- 15 virka daga
1. mars - 31. mars
10 - 16 virka daga
1. apríl 20. maí 10 16 alla daga
20. maí 15. júní         9 19 alla daga
16. júní 20. ágúst          8 21 alla daga
21. ágúst 15. september          9 19 alla daga
16. september 31. október        9 16 alla daga
1. nóvember - 31. desember 11 - 15 alla daga*

* Lokað 24.-26. desember og 31. des.

Gestir sem koma utan afgreiðslutíma geta fundið flestar helstu upplýsingar á vefnum, t.a.m. um ástand gönguleiða.


Skaftafellsstofa er upplýsinga- og fræðslumiðstöð þar sem gestir fá svör við spurningum um náttúrufar Skaftafells, gönguleiðir, gistingu og afþreyingu í næsta nágrenni. Þar er sýningarsalur með áhugaverðum fróðleik um samofna sögu náttúru og fólks í Skaftafelli auk myndbandssýningar um Skeiðarárhlaupið árið 1996.

Í Skaftafellstofu er þjóðgarðsverslun með bækur, póstkort og handverk. Lögð er áhersla á íslenskar vörur og muni sem tengjast byggðarlaginu.

Tjaldsvæðið í Skaftafelli er rúmgott. Sérstakt svæði er ætlað fyrir hjól- og fellihýsi, tjaldvagna og húsvagna. Tjaldsvæðið er opið frá 1. maí til loka september. Óheimilt er að tjalda eða gista í bílum og húsvögnum utan merktra tjaldsvæða án sérstaks leyfis þjóðgarðsvarðar. Í Skaftafelli eru engin akvegir nema heimreið að bæjum. Bílastæði eru við tjaldsvæðið og frá því liggja gönguleiðir um þjóðgarðinn.

Landverðir starfa í Skaftafelli yfir sumarmánuðina ásamt þjóðgarðsverði. Gestir eru hvattir til að leita upplýsinga og fræðslu hjá starfsfólki þjóðgarðsins. Undir leiðsögn landvarða bjóðast gönguferðir þar sem gestum gefst kostur á að kynnast stórbrotnu landi Skaftafells og fræðast um sögu og náttúru með staðkunnugum. Gengnar eru ólíkar leiðir og ættu allir að geta fundið gönguleið við sitt hæfi.

ALMENNAR UPPLÝSINGAR:

Skaftafellistofa,
785 Öræfi,
Sími: 470 8300

skaftafell@vatnajokulsthjodgardur.is
www.vatnajokulsthjodgardur.is



Þetta vefsvæði byggir á Eplica