Ferðast um þjóðgarðinn
Description

Gljúfrastofa

icn-information_sm


Gestastofa þjóðgarðsins á norðursvæði er í Ásbyrgi. Þar er hægt að nálgast allar upplýsingar um þjóðgarðinn og nágrenni hans; gönguleiðir, náttúrufar, sögu, þjónustu og afþreyingu. Gljúfrastofa er opin frá 1. maí til 30. september. Utan þess tíma er þar opið eftir samkomulagi. Starfsmenn þjóðgarðsins bjóða skipulagðar gönguferðir og sérstök dagskrá er fyrir börn.

GO-Gljufrastofa2Afgreiðslutími Gljúfrastofu árið 2010:

1. maí – 31. maí: 10 16 daglega
1. júní 20. júní:           9  19 daglega
21. júní 15. ágúst: 9 21 daglega
16. ágúst 31. ágúst:   9  19 daglega
1. sept 30. sept:        10 16 daglega


Þjóðgarðurinn er opinn gestum allt árið um kring. Í Ásbyrgi er stórt tjaldsvæði með aðstöðu fyrir tjöld, fellihýsi og húsbíla. Í Vesturdal er fallegt tjaldsvæði en þjónusta minni. Tjaldsvæðið í Ásbyrgi er opið frá 15. maí til 15. september og í Vesturdal frá 10. júní til 15. september, með þjónustu og gæslu. Hafa þarf samband við þjóðgarðsvörð ef gestir hyggjast dveljast í þjóðgarðinum utan þjónustutíma tjaldsvæða eða nýta sér Gljúfrastofu.


GO-Gljufrastofa1Almennar upplýsingar:
Gljúfrastofa
Ásbyrgi
671 Kópasker

Sími 470 7100
jokulsargljufur@vatnajokulsthjodgardur.is







Þetta vefsvæði byggir á Eplica