Lýsing á starfsstöðvum Vatnajökulsþjóðgarðs
Suðursvæði
Skaftafell: Í Skaftafelli er gestastofa, móttaka, upplýsingagjöf, tjaldsvæði og sala minjagripa o.fl. Auk þess er eftirlit á gönguleiðum og helstu stöðum innan svæðisins, t.d. Skaftafellsjökli, Svartafossi, Morsárdal og víðar. Starfsmenn hafa aðsetur í Skaftafelli.
Lónsöræfi: Starfssvæði landvarðar er á Lónsöræfum, friðlandinu í Stafafellsfjöllum sem er í umsjón Vatnajökulsþjóðgarðs. Starfið felst í upplýsingagjöf til ferðamanna, eftirliti með gönguleiðum og öðrum tilfallandi verkefnum. Samantekt skal skilað í lok sumars um helstu atriði varðandi umferð, merkingar og náttúrufar.
Höfn: Landvörður sem sinnir að hluta til upplýsingagjöf til ferðamanna í upplýsingamiðstöðinni/jöklasýningunni á Höfn en einnig eftirliti með áningarstöðum, þátttöku í talningum og viðhorfskönnun meðal ferðamanna á suðursvæði þjóðgarðsins.
Vestursvæði
Hólaskjól: Landvörður hefur aðsetur í Hólaskjóli . Starfssvæðið er sunnan Sprengisandsleiðar, austan Veiðivatna, í Jökulheima. Eftirlit með landsvæði og umferðar- og gönguleiðum. Samantekt um helstu atriði varðandi umferð, afmörkun umferðar, merkingar og náttúrufar. Umsjón og eftirlit með aðstöðu, landsvæði og göngustígum í Eldgjá.
Nýidalur: Landvörður hefur aðsetur í skála Ferðafélags Íslands í Nýjadal. Starfssvæðið er Vonarskarð og landsvæði aðliggjandi Tungnafellsjökli. Eftirlit með landsvæði og umferðar- og gönguleiðum. Samantekt um helstu atriði varðandi umferð, afmörkun umferðar, merkingar og náttúrufar.
Hrauneyjar: Landvörður hefur aðsetur í húsnæði Hálendismiðstöðvarinnar. Starfssvæðið er Sprengisandsleið og umferð að vestursvæði Vatnajökulsþjóðgarðs. Eftirlit með landsvæði og umferðar- og gönguleiðum. Samantekt um helstu atriði varðandi umferð, afmörkun umferðar, merkingar og náttúrufar. Samstarf er um landvörslu við landverði í Vonarskarði (Nýjadal) og í Hólaskjóli.
Norðursvæði
Jökulsárgljúfur: Starfsmenn hafa aðsetur í Ásbyrgi eða Vesturdal en starfsemin er dreifð um svæðið. Í Ásbyrgi er gestastofa, móttaka, upplýsingagjöf, tjaldsvæði og sala minjagripa o.fl. Í Vesturdal er móttaka, upplýsingagjöf og tjaldsvæði. Auk þess er eftirlit á áningastöðum við Dettifoss, beggja vegna ár, í Hljóðaklettum, Hólmatungum, við Hafragil og á gönguleiðum.
Herðubreiðarlindir og Dreki: Landverðir og skálaverðir hafa aðsetur í Herðubreiðarlindum eða Dreka, en þar eru móttaka, upplýsingagjöf, tjaldsvæði og skálar. Eftirlit er með svæðinu og gönguleiðum í friðlandinu í Herðubreiðarlindum og náttúruvættinu Öskju, t.d. við Víti og Öskjuvatn.
Austursvæði
Hvannalindir: Landvörður hefur aðsetur í Hvannalindum. Starfssvæðið er hluti Austursvæðis. Landverðir sinna upplýsingagjöf og eftirliti á svæðinu.
Kverkfjöll og Snæfell: Landverðir og skálaverðir hafa aðsetur í Kverkfjöllum og Snæfelli. Starfssvæðið er hluti Austursvæðis Á báðum stöðunum sinna landverðir skálavörslu, móttöku ferðamanna, upplýsingagjöf og eftirliti á svæðunum, auk þess að fara í gönguferðir. Á báðum stöðunum er einnig tjaldsvæði.
