Um okkur
Description

Fréttir

Fuglablik- Ljósmyndasýning Fuglaverndar í Skaftafelli

11.7.2012

Rjúpukarri við Jökulslóð

Í sumar er í veitingasal Skaftafellsstofu sýning á fuglamyndum félaga Fuglaverndar.

Þegar stafræna byltingin varð á fyrstu árum aldarinnar fjölgaði mjög í hópi fuglaljósmyndara, eins og sést á fjölda þáttakenda í sýningunni sem eru alls 18. Þar á meðal eru margir af helstu myndasmiðum þjóðarinnar á sínu sviði.  Aldurinn spannar frá 15 ára til 87 ára. Viðfangsefnin eru ærið misjöfn, en sammerkt með verkunum er aðdáun og virðing á íslenskri náttúru og íslenskum fuglum.  Í verkunum leika ljósmyndararnir sér að litum, ljósi og skugga, sýna fugla að leik og starfi, í hreyfingu eða hvíld, portrett eða sem hluta af náttúrunni.  Efnistökin eru jafn margbreytileg og ljósmyndararnir eru margir og býður sýningin uppá afar skemmtilega upplifun.

Umhverfisráðuneytið styrkti sýninguna og er hún opin á afgreiðslutíma veitingasölunnar.

Myndin sem hér fylgir er af rjúpukarra í Skaftafelli. Hún er ekki hluti af sýningu Fuglaverndar.