Um okkur
Description

Fréttir

Fréttir af vestursvæði

3.7.2012

Vonarskarð-HærulangurSumarið er komið tveimur til þremur vikum fyrr en í fyrra og starfsemin óðara að fara í gang. Fært var orðið í Hólaskjól strax í byrjun júní og litlu síðar voru Dómadalsleið og Fjallabaksleið nyrðri opnaðar og einnig Lakavegur.

Sprengisandsleið í Nýjadal að sunnanverðu var opnuð rétt fyrir þjóðhátíð en Sprengisandsleið norðan Nýjadals verður opnuð á næstu dögum.

Sex landverðir verða við störf á vestursvæði í sumar. Þrír þeirra teljast vera heimamenn og er það gleðilegt því að það er stefna þjóðgarðsins að virkja til starfa fólk af nærsvæðum eins og framast er kostur. Tímabundið hlé hefur verið gert á verndaráætlunarvinnu vegna stækkunar þjóðgarðsins í Skaftárhreppi meðan stjórn þjóðgarðsins undirbýr fleiri breytingar á stjórnunar- og verndaráætlun garðsins. Fyrir vikið gefst svæðisráði og fleirum tækifæri til vettvangsferða um viðkomandi svæði í sumar. Gert er ráð fyrir að vinna við verndaráætlun hefjist aftur í haust og að svæðisráð skili stjórn garðsins tillögu sinni síðar á árinu.

Í sumar er fyrirhugað að ljúka þeirri uppbyggingu sem hófst á Lakasvæðinu 2010. Reist verða landvarðahús í Blágiljum (seinni áfangi) og viðveruhús við Laka til að fullgera áningaraðstöðuna þar. Þá verður haldið áfram að stika slóðir og merkja aðkomuleiðir og helstu áningarstaði þjóðgarðsins og gefinn út bæklingur um norðurhluta vestursvæðis, Tungnafellsjökul og Vonarskarð. Áfram verður haldið með fræðsludagskrá í lítillega breyttri mynd frá því í fyrra. Dagskráin er birt í þessu fréttabréfi. Við bjóðum unga sem aldna velkomna að njóta fræðsludagskrárinnar og náttúru og þjóðgarðsins með okkur í sumar.

Ljósmyndina sem hér fylgir tók Snorri Baldursson, þjóðgarðsvörður á vestursvæði, af læknum Hærulangi í Vonarskarði.