Breska jarðfræðistofnunin rannsakar Virkisjökul
Undanfarin 16 ár hefur Breska jarðfræðistofnunin (British Geological Survey) starfrækt athugunarstöð við Virkisjökull í Öræfum þar sem fylgst er með þróun og framgangi jökulsins. Athuganirnar beinast einnig að nærliggjandi svæðum og þeim áhrifum sem staðbundið veðurfar hefur á þau.
Í athugunarstöðinni eru nemar sem safna stöðugt saman gögnum um veðurfar og jarðvirkni á svæðinu. Þannig eru breytingar jökulsins og landsins skráðar með endurteknum nákvæmnisathugunum. Tæknibúnaðurinn er af nýjustu og fullkomnustu gerð og fullyrða bresku vísindamennirnir að hann gefi þeim einstaka innsýn í myndun landslags og áhrif veðurfarsbreytinga á jökla.
Ljósmyndir gegna veigamiklu hlutverki í gagnasöfnun, ekki síst vegna þess að með þeim er hægt að setja fram niðurstöður úr rannsókninni á einfaldan hátt fyrir leikmenn. Útbúin hafa verið myndbönd sem sýna bráðnun Virkisjökuls á einu ári og framskrið Fallsjökuls á sama tímabili:
Vísindamennirnir munu heimsækja athugunarstöðina í ágúst komandi. Þá um leið munu þeir kynna verkefnið fyrir gestum Vatnajökulsþjóðgarðs í stuttum fyrirlestri í Skaftafellsstofu. Nánari dagsetning verður auglýst síðar. Þangað til geta áhugasamir kynnt sér verkefnið á íslenskaðri vefsíðu þess.
