Um okkur
Description

Fréttir

Fuglatalning við Ástjörn

21.5.2012

astjornSíðastliðinn miðvikudagsmorgun fóru Helga Árnadóttir aðstoðar þjóðgarðsvörður og Snæþór Aðalsteinsson nemandi í atvinnuþema og töldu fugla á Ástjörn. Talið var frá suðurhluta tjarnarinnar og horft yfir hana með fjarsjá. Mest taldist af flórgoða eða 34 fuglar en þess má geta að aðeins er talið að um 700 pör af flórgoða verpi á landinu, langflestir á norðausturlandi. Algjört hrun varð í íslenska flórgoðastofninum á síðari hluta síðustu aldar. Undir lok aldarinnar fór honum sem betur fer aftur að fjölga á landinu og hefur stofninn verið að stækka síðan. Byrjað var að veiða mink við Ástjörn um aldamótin en þá sást aðeins eitt par af flórgoða með unga. Eftir það hefur honum fjölgað mikið á tjörninni að hluta til vegna þess að þar hefur minknum fækkað mikið. Einnig taldist mikið af skúfönd, 25 fuglar og rauðhöfðaönd, 14 fuglar en þessar andategundir eru báðar algengar á láglendi um allt land. Af öðrum fuglum sem töldust voru 12 álftir, 4 grágæsir og 1 himbrimi. Allt í kringum tjörnina var svo mikið af vaðfuglum á borð við hrossagauka, heiðlóur, spóa, stelka og jaðrakana. Einnig sást mikið af skógarþröstum og einn syngjandi músarindill við tjörnina. Ástjörn er í norðurhluta Vatnajökulsþjóðgarðar stutt frá Jökulsá á Fjöllum þar sem hún rennur út úr gljúfrunum og út á sandana fyrir botni Öxarfjarðar.

Snæþór Aðalsteinsson, nemandi úr Öxarfjarðarskóla.

florgodi

Flórgoði.

Mynd: Sigmundur Ásgeirsson.