Fréttir
Laumufarþegi í Öskju - áður óþekkt fiðrildategund á Íslandi
Síðastliðið sumar rakst Stefanía Eir Vignisdóttir landvörður í Öskju á litla sérkennilega skepnu, sem lá hreyfingarlaus á bílastæðinu við Vikraborgir. Vel var búið um viðkomandi og far fengið með rútu í Mývatnssveit. Þegar sérfræðingar á Náttúrustofu Norðausturlands fengu dýrið í hendur, kom í ljós að um tímamótafund á Íslandi var að ræða – þó ekki hafi viðkomandi komið í þjóðgarðinn á eigin afli. Sjá allt um málið á vef Náttúrustofu Norðausturlands.
