Um okkur
Description

Fréttir

Landvarðanámskeið 2012

27.1.2012

Landvarðarnámskeið Umhverfisstofnunar verður á vormánuðum 2012. Jón Björnsson forstöðumaður Hornstrandastofu sér um námskeiðið, undirbúning o.fl. ásamt kennurum sem koma að helstu þættir námskeiðum. Námskeiðið spannar rúmlega 100 kennslustundir sem raðast niður á 4 vikur. Það hefst 16. febrúar og lýkur 11. mars. Nemendur sem lokið hafa landvarðarnámskeiði ganga fyrir um landvarðastörf í þjóðgörðum og öðrum friðlýstum svæðum. Umhverfisstofnun hefur yfirumsjón með námskeiðinu.

Markmið námskeiðsins er að tryggja framboð af hæfum landvörðum til starfa á friðlýstum svæðum. Kennt er samkvæmt námskrá Umhverfisstofnunar og reglugerðar um landverði, nr. 061/1990. 

Lágmarksaldur þátttakenda er 20 ára á árinu. Lágmarksfjöldi þátttakenda til að námskeið verði haldið er 15 og hámarksfjöldi 30.  

Nánari upplýsingar um námskeiðið eru á heimasíðu Umhverfisstofnunar.




Þetta vefsvæði byggir á Eplica