Um okkur
Description

Fréttir

Opnir samráðsfundir vegna Stjórnunar- og verndaráætlunar fyrir Langasjó-Eldgjá

16.1.2012

Ny_svaedi_2011bSvæðisráð vestursvæðis Vatnajökulsþjóðgarðs boðar til samráðsfunda um Stjórnunar- og verndaráætlun fyrir nýtt svæði (Langasjó – Eldgjá) sem bættist við þjóðgarðinn sl. sumar með útgáfu reglugerðar nr. 763/2011.

Kynntar verða hugmyndir svæðisráðs og leitað álits fundarmanna varðandi verndarákvæði, samgöngur, þjónustusvæði o.fl.

Fundirnir verða haldnir sem hér segir:

• Á veitingastaðnum Nauthóli, Reykjavík, mánud. 23. janúar, kl 20:00.
• Á Geirlandi, Skaftárhreppi, þriðjud. 24. janúar, kl 20:30.
• Á Laugalandi í Holtum, miðvikud. 25. Janúar, kl 20:30.

Allir velkomnir.
Svæðisráð vestursvæðis


Smellið á myndina fyrir stækkaða útgáfu






Þetta vefsvæði byggir á Eplica