Um okkur
Description

Fréttir

Nýr gönguleiðabæklingur fyrir Skaftafell

7.1.2012

Sudursv_Skaftafell_insertÚt er kominn nýr gönguleiðabæklingur fyrir Skaftafell. Í honum eru að finna helstu upplýsingar um Skaftafell, svo sem landslag, náttúrufar, búsetusögu og þjóðgarð.

Yfirlitskort af Skaftafelli (1:55.000) hefur verið rækilega yfirfarið og gönguleiðir uppfærðar samkvæmt nýjum GPS-mælingum. Auk þess er sérstakt kort fyrir nærsvæði Skaftafellsstofu og framheiðina eins og hún nær að Seli, Svartafossi og Sjónarnípu. Þetta kort er í hærri upplausn eða 1:15.000. Sýnir það mjög vel þá ótal möguleika á hringleiðum sem finna má í fremsta hluta Skaftafellsheiðar.

Önnur nýjung á kortinu er sú að gönguleiðir eru nú merktar samkvæmt erfiðleikastuðli. Má þannig auðveldlega sjá hvaða leiðir eru færar óvönum göngumönnum, hreyfihömluðum og svo þeim sem hafa mikla reynslu af fjallabrölti. Allir ættu því að geta fundið leið sem hæfir hverju tilefni.

Gönguleiðabæklingurinn er í tveimur útgáfum; íslenskri og enskri. Hann er í brotinu 10x15 cm og kemst því auðveldlega fyrir í brjóstvasa. Bæklingurinn fæst keyptur í gestastofum Vatnajökulsþjóðgarðs ásamt öðrum gönguleiðabæklingum þjóðgarðsins, en þeir eru þessir:

Jökulsárgljúfur

Askja, Herðubreiðarlindir, Kverkfjöll og Hvannalindir

Snæfellsöræfi

Lakagígar, Langisjór og Eldgjá




Þetta vefsvæði byggir á Eplica