Vatnajökulsþjóðgarður hlýtur aðild að EUROPARC
Vatnajökulsþjóðgarði barst í gær staðfesting á því að umsókn þjóðgarðsins um aðild að EUROPARC hefði verið samþykkt.
EUROPARC eru frjáls félagasamtök evrópskra verndarsvæða. Þau voru stofnuð 1973 og eru aðildarfélagar nú yfir 400 í 36 löndum. Markmið EUROPARC eru margþætt en af lykilmarkmiðum má nefna bætta stjórnhætti innan verndarsvæða og aukna almenningsvitund um gildi verndarsvæða. Ennfremur beita samtökin sér í þágu nýrra svæða og leitast við að hafa áhrif á stefnumótandi stjórnvaldsákvarðanir og opinber verkefni þannig að þær/þau samræmist markmiðum verndarsvæða.
Með aðild að EUROPARC fær Vatnajökulsþjóðgarður aðgang að mikilli sérþekkingu og reynslu í stjórnun verndarsvæða víðsvegar um Evrópu. Einnig opnast möguleikar á samstarfi sem getur orðið til mikilla hagsbóta fyrir þjóðgarðinn, gesti hans, samstarfsaðila og viðfangsefni.
