Fréttir
Lindaá og Flæður ófærar
Vegur F88 á milli þjóðvegar 1 og Herðubreiðarlinda er nú lokaður vegna vatnavaxta í Lindaá norðan Herðubreiðarlinda.
Í Öskju (og Herðubreiðarlindir) er fært um vegi F905 og F910. Þó er vatn á veginum við brúnna á Jökulsá við Upptyppinga. Það hefur verið lítið og ekki til vandræða en þegar það náði toppi í gærkvöld var það um 30 cm djúpt.
Flæður á Gæsavatnaleið eru ófærar sem stendur. Frekari upplýsingar veitir hálendisfulltrúi á norðursvæði Vatnajökulsþjóðgarðs í síma 842 4363.
