Nýr landvarðarbústaður opnaður í Blágiljum: Fyrsta húsið af þessu tagi í Vatnajökulsþjóðgarði
Nýrlandvarðarbústaður var opnaður formlega í Blágiljum í Skaftárhreppi þann 4. júlí.
Allt frá því að Vatnajöklusþjóðgarður tók við vörslu Laka af Umhverfisstofnun árið 2008 hefur verið stefnt að því að byggja nýtt íveruhús fyrir landvörð svæðisins, en hann hefur hafst við í gömlum vegavinnuskúr í Blágiljum. Nýja húsinu var einnig valinn staður í Blágiljum, en þar er fyrir tjaldsvæði og gangnamannaskáli í eigu Skaftárhrepps. Einn landvörður hefur verið í Laka fram að þessu en stefnt er að fjölgun þeirra, einkum ef af stækkun þjóðgarðsins verður á þessu svæði.
Húsið er hannað af arkitektastofunni Arkís. Markmiðið var að hanna sjálfbært hús með tilliti til orkunotkunar, frárennslis og viðhalds sem nýst getur Vatnajökulsþjóðgarði á fleiri stöðum innan garðsins. Það er byggt upp af einingum sem hægt er að flytja og raða saman á mismunandi hátt, í misstórum einingum eftir umfangi starfseminnar, svo það falli sem best að landslagi á hverjum stað. Húsin eru klædd að utan með cortenstáli sem myndar með tímanum náttúrulega ryðbrúna, viðhaldsfría yfirborðsáferð. Aðlægt grjót verður notað í grjóthleðslur upp að veggjum og palli svo húsin falli sem best inn í landslagið á hverju svæði. Að innan eru veggir og loft klædd með birkikrossviði og furuborð eru á gólfum.

Blágiljahúsið samansendur af einni gunneiningu, þ.e íbúð landvarðar (25 m2), verkstæði ásamt geymslu (12 m2) og palli sem tengir húsin saman. Gert er ráð fyrir viðbótareiningu með eldunarkrók og setustofu þegar landvörðum fjölgar á svæðinu.
Smíði og uppsetningu hússins annaðist RR Tréverk ehfá Kirkjubæjarklaustri.
Nánari upplýsingar gefa:
Snorri Baldursson, þjóðgarðsvörður Vestursvæðis Vatnajökulsþjóðgarðs,
s. 842 4375
Kári Kristjánsson, aðstoðarmaður þjóðgarðsvarðar og landvörður í Laka,
s 842 4378
