Nýtt sorpflokkunarkerfi tekið í notkun í Vatnajökulsþjóðgarði
Í vikunni voru settar upp ný ílát til flokkunar úrgangs í Skaftafelli. Er um að ræða frumhönnun á kerfi sem unnið er sérstaklega fyrir Vatnajökulsþjóðgarð.
Í nýja kerfinu eru fimm aðgreind hólf. Þau eru gerð fyrir almennan úrgang, dósir og flöskur til endurvinnslu, rafhlöður, pappír og lífrænan úrgang. Er það nýbreytni því áður voru aðeins drykkjarumbúðir flokkaðar frá öðru rusli.
Þó ekki sé komin mikil reynsla á flokkunarkerfið virðast gestir í Skaftafelli taka því á jákvæðan hátt, enda kannski velflestir vanir meiri flokkun sorps í sínu heimalandi en almennt þekkist á Íslandi. Því mun áreiðanlega ekki langur tími líða áður en kerfi sem þetta sést á fleiri áfangastöðum innan Vatnajökulsþjóðgarðs.
