Fréttir
Vegaframkvæmdir í Jökulsárgljúfrum - tafir fyrirsjáanlegar
Vegna lagfæringa á fjallveg F862 á milli Vesturdals og Dettifoss í Jökulsárgljúfrum verða miklar truflanir á umferð 24. júní til 1. júlí. Verður vegurinn lokaður milli klukkan 7 og 19.
Engar truflanir verða á umferð af Norðausturvegi um veg 862 í Vesturdal, né af hringvegi eftir F862 niður að Dettifossi. Einnig er fært að Dettifossi að austan um veg 864 Hólssand.
Beðist er velvirðingar á þessum truflunum um leið og mælst er til þess að ferðamenn noti aðrar leiðir.
