Um okkur
Description

Fréttir

Fannst nýr landnemi í Öræfum á Degi villtra blóma?

13.6.2010

SKA-blomaganga2010-01

Í dag var Dagur hinna villtu blóma haldinn víðsvegar um landið, meðal annars í Ásbyrgi og Skaftafelli. Mættu tæplega 20 manns í blómagönguna í Skaftafelli og að vanda var það Hálfdán Björnsson á Kvískerjum sem leiddi hópinn.

Hálfdán er ígildi alfræðiorðabókar þegar kemur að náttúrufræði, ekki síst blómplöntum. Vakti hann athygli þátttakenda á bæði algengum og fágætum tegundum blómplantna sem finnast á jökulaurunum austan Skaftafellsstofu. Af þeim fjölmörgu plöntum sem skoðaðar voru má nefna smjörgras, barnarót, klettafrú, tungljurt, svartburkni og villijarðarber. Einnig fannst planta sem álitin var móanóra (sjá mynd að neðan). Vissi Hálfdán ekki til þess að sú tegund hefði áður fundist í Öræfum.

Gangan í dag var vel heppnuð í alla staði. Fjölmargar sjaldséðar tegundir fundust ásamt einum líklegum nýliða á svæðinu. Veður var líka eins og best verður á kosið og var ekki annað að sjá en allir þátttakendur nytu göngunnar. Eina kvörtunin kom frá Hálfdáni fararstjóra sem í glettnistón sagði æ þéttari birkiskóg hindra sig í að komast hefðbundna blómagönguleið. Það kom þó ekki í veg fyrir að göngumenn nytu ferðarinnar og kunnu þeir allir Hálfdáni bestu þakkir fyrir leiðsögnina.

SKA-blomaganga2010-02



Þetta vefsvæði byggir á Eplica