Sjálfboðaliðar UST teknir til starfa í Vatnajökulsþjóðgarði
Sjálfboðaliðar á vegum Umhverfisstofnunar munu í sumar vinna að ýmsum verkefnum á suðursvæði Vatnajökulsþjóðgarðs. Er sú vinna að miklu leyti framhald af verkefnum fyrri ára. Í Morsárdal verður haldið áfram að berjast gegn útbreiðslu lúpínu og viðhaldi sinnt á gönguleiðum í Skaftafelli.
Vinna sjálfboðaliðanna er þó ekki eingöngu bundin við Skaftafell og fyrr í vikunni sem er að líða fór hópur þeirra á Heinabergssvæðið og í Hoffell og vann að stikun gönguleiða.
Í Hoffelli var stikuð ný leið um Geitafellsbjörg, alls tveir kílómetrar, og tengist sú leið eldri leiðum um Lambasund og á Geitafell. Leiðin um Lambasund var jafnframt stikuð sem og áleiðis upp Geitafell í tæplega 600 metra hæð. Eru það samtals 2,5 km sem ekki voru stikaðir áður.
Á Heinabergssvæðinu voru stikur lagfærðar á gönguleið sem liggur um Hjallanes í Skálafelli. Ennfremur voru settar niður stikur á köflum sem áður voru óstikaðir og er nú stikuð hringleið í landi sem einnkennist af jökulskröpuðu landslagi og sérstökum útfellingum í bergi.
Það þarf ekki að velkjast í vafa um að sjálfboðaliðarnir vinna gott og óeigingjarnt starf. Eiga þeir bestu þakkir skildar fyrir.
