Jökulsárgljúfur um páskana
Engin dagskrá er í boði í Jökulsárgljúfrum um páskana og Gljúfrastofa er lokuð. Vegurinn inn í Ásbyrgi (vegur nr. 861) er fær en þess ber að geta að vegurinn er ekki ruddur og lokast auðveldlega í mikilli ofankomu.
Áhugasömum er hins vegar bent á að svæðið er opið gestum og þeir sem eru vel skóaðir eða á skíðum geta farið um stíga Ásbyrgis og nágrennis. Gestir eru vinsamlegast beðnir um að taka mið af aðstæðum hverju sinni (og varið ykkur á gosinu!).
