Um okkur
Description

Ný staða hálendisfulltrúa á norðursvæði Vatnajökulsþjóðgarðs

Í lok febrúar var auglýst eftir umsækjendum í nýja stöðu hálendisfulltrúa á norðursvæði Vatnajökulsþjóðgarðs. Það voru 22 umsækjendur um starfið og var það Jóhanna Katrín Þórhallsdóttir sem var ráðinn til starfa.

 Hanna Kata

Jóhanna er landfræðingur að mennt, með kennsluréttindi, og hefur starfað sem framhaldsskólakennari í fjögur ár.  Jóhanna hefur einnig starfað sem landvörður á sumrin undanfarin 10 ár og hefur mikla reynslu af starfi á friðlýstum svæðum. Jóhanna mun hafa starfstöð í Mývatnssveit.

 

Vatnajökulsþjóðgarður býður Jóhönnu velkomna til starfa og óskar henni velfarnaðar í nýju starfi.



Þetta vefsvæði byggir á Eplica