Fræðsluskjálfti í Þingeyjarsýslum
Jarðfræðiverkefni fyrir grunnskólanemendur
Skjálftasetrið á Kópaskeri og Gljúfrastofa í Ásbyrgi hafa tekið höndum saman, með aðstoða kennara úr Öxarfjarðarskóla, og útbúið kennsluverkefni í tengslum við heimsókn nemenda á þessi tvö fræðslusetur. Verkefnið gengur út á það að kynna fyrir nemendum starfsemi Skjálftaseturs og Gljúfrastofu með sérstakri áherslu jarðskjálfta og þar af leiðandi Kópaskersskjálftann sem skók Norðausturland 13. janúar 1976. Inn í þetta fléttast svo fræðsla um ýmis jarðfræðifyrirbrigði í nágrenni Kópaskers og Ásbyrgis. Verkefnið er styrkt af NEED (Northern Environmental Education Development), Menningarmálaráði Eyþings og Norðurþingi.
Fimmtudaginn 18. mars var verkefnið prófað í fyrsta skipti. Það voru nemendur í 4.-7. bekk Öxafjarðarskóla sem tóku þátt í fyrsta Fræðsluskjálftanum og höfðu þau fengið nokkrar kennslustundir fyrir heimsóknina þar sem farið var yfir grunnatriði í jarðfræði tengdir jarðskjálftum og eldvirkni. Á heimsóknardaginn byrjuðu nemendurnir á því að koma í Gljúfrastofu. Þar tók Helga Árnadóttir, starfsmaður Vatnajökulsþjóðgarðs, á móti þeim og leiddi þau um jarðfræðihluta sýningarinnar í Gljúfrastofu. Nemendur tóku virkan þátt í fræðslunni með því t.d. að leika flekahreyfingar, svara spurningum og búa til jarðskjálftamæli og eldgos. Seinni hluti heimsóknarinnar var í Skjálftasetrinu á Kópaskeri. Þar tók Hólmfríður Halldórsdóttir, starfsmaður Skjálftasetursins á móti nemendunum og fræddi þau um jarðskjálfta með áherslu á Kópaskersskjálftann og þau áhrif sem hann hafði á samfélag og landslag. Nemendur tóku virkan þátt í fræðslunni með því að leysa verkefni tengd heimsókninni.
Nemendur Öxafjarðarskóla stóðu sig með stakri prýði og fannst umsjónarmönnum verkefnisins mjög gaman að fá þau í heimsókn. Í framhaldinu er stefnan á að bjóða fleiri skólum úr Þingeyjarsýslum í heimsókn og vonandi verða þessar heimsóknir fastur liður í starfsemi þessara tveggja fræðslusetra.
Myndirnar tók Einar Magnús kennari í Öxafjarðarskóla.
