Um okkur
Description

Kynningafundur vegna verndaráætlunar fyrir austursvæði Vatnajökulsþjóðgarðs

Undanfarna mánuði hefur staðið yfir vinna við gerð verndaráætlunar fyrir Vatnajökulsþjóðgarð. Efni hennar er fjölþætt og tekur jafnt til verndunar og nýtingar á því landi sem tilheyrir þjóðgarðinum.

Nú eru komin drög að verndaráætluninni og stendur svæðisráð austursvæðis fyrir kynningu á þeim. Hægt er að nálgast drögin hér: [pdf 3,5 Mb] (uppfært 24.03.10)

Fundurinn verður haldinn sem hér segir:

Fimmtudaginn 11.mars kl. 20 á Hótel Héraði

Eiríkur Bj. Björgvinsson formaður svæðisráðs Austursvæðis mun stýra fundinum og Guðrún Jónsdóttir mun kynna verndaráætlunina.

Svæðisráðið verður á staðnum og gefst fólki kostur á að koma ábendingum og athugasemdum við drögin á framfæri.

Sýn heimamanna og annarra hagsmunaaðila er mikilvægur þáttur í þessari vinnu og því eru allir hvattir til að mæta!



Þetta vefsvæði byggir á Eplica