Um okkur
Description

Stofnfundur félags um Fuglastíg á Norðausturlandi

Þriðjudaginn 2. mars var haldinn stofnfundur félagsins Fuglastígur á Norðausturlandi. Tilgangur félagsins er að vera samstarfsvettvangur fyrirtækja og einstaklinga á Norðausturlandi um uppbyggingu fuglaskoðunar á svæðinu og ferðaþjónustu henni tengdri.  

Fundarmenn á stofnfundi félags um Fuglastíg á NorðausturlandiTakmark félagsins er að efla ímynd Norðausturlands sem eftirsóknarverðs fuglaskoðunarsvæðis, með því að þróa og bjóða upp á þjónustu fyrir fuglaskoðara sem byggir á því mikla og fjölbreytta fuglalífi sem er að finna á svæðinu.

Stofnfundurinn var haldinn í Gljúfrastofu, Ásbyrgi og hann sóttu um 30 manns víðs vegar að svæðinu, allt frá Mývatnssveit austan af Langanesi.  Segja má að félagið sé formlegt framhald á verkefni sama heitis sem unnið hefur verið að á vegum Atvinnuþróunarfélags Þingeyinga í samstarfi við Náttúrustofu Norðausturlands, Félag fuglaáhugamanna í Þingeyjarsýslum og fleiri aðila á undanförnum árum.

Á fundinum fór verkefnisstjóri AÞ stuttlega yfir fjölmörg verkefni Fuglastígs og Solveig Sigurgeirsdóttir kynnti þjónustu sem veitt er hjá Impru á Nýsköpunarmiðstöð m.a. til klasaverkefna. Þá tóku við almennar umræður þar sem m.a. voru kynntar ýmsar nýjar hugmyndir og spennandi verkefni sem aðilar að Fuglastígnum eru að vinna að. Fyrsta stjórn félags um Fuglastíg á NorðausturlandiÞar má t.d. nefna stofnun Fálkaseturs í Jökulsárgljúfrum.  Samþykktir fyrir félagið voru afgreiddar og síðan kosin stjórn.  Fyrstu stjórn félagsins skipa Þorkell Lindberg Þórarinsson frá Náttúrustofu Norðausturlands, Mirjam Blekkenhorst frá Farfuglaheimilinu á Ytra Lóni á Langanesi, Pétur Bjarni Gíslason frá Fuglasafni Sigurgeirs í Mývatnssveit, Hermann Bárðarson verkefnisstjóri Umhverfisskólans og Kolbrún Úlfsdóttir frá Gistiþjónustunni Rauðuskriðu. Varamenn í stjórn eru Hjörleifur Finnsson þjóðgarðsvörður í Vatnajökulsþjóðgarði, Ásdís Erla Jóhannesdóttir frá Sel-Hótel Mývatn og Oddur Örvar Magnússon sem vinnur að uppbyggingu gistiaðstöðu í Flatey.

Nánari upplýsingar um verkefnið má finna á heimasíðu Atvinnuþróunarfélags Þingeyinga.



Þetta vefsvæði byggir á Eplica